Leita í fréttum mbl.is

Það er bara þannig....

 

maemmirot

S.s ég er ekki ad slá í gegn med bröndurum hérna á blogginuGasp og ég sem var i kasti hérna yfir þessum brandara...en TAKK ÞÓRUNNTounge þér fannst hann greinilega lika fyndinnWink líkur sækir líkan og margt er líkt með skyldum eða hvað? allavega....ég er að reyna að jafna mig á "dissinu" og held mínu strikiJoyful 

Beat this: krabbameinsskoðun og þú ert búin ad vera með vindgang DAUÐANS síðasta sólarhringWoundering hvað gera bændur þá?? jú jú girða bara ofaní klofstígvélin,snýta sér og drífa sig af stað og vona  það bestaPouty og jibbikæjei...kláraði skoðun án þess ad freta framaní doksannGasp sem annars er hin ágætasta kona,vill nú ekki hefja kynnin á vitlausum fæti segðu...fæ svo að vita eftir 3 vikur hvort allt er í lagi. Krossa putta og tærWink hún vildi nú endilega taka blóðprufu líka ( veit ekki hvort hún hélt ég væri full....Woundering ) og svo tékkaði hún þrýstinginn og alles...held þetta fylgi ekki krabbaskoðuninni...gerði það allavega ekki heima..vonandi bara að henni hafi ekki fundist ég svona illa útlítandi að það hljóti bara að ama eitthvað að mér..Pouty og ég sem púðraði nefið og ALLTFrown en svo gæti það verið af því hún var nýlega búin ad fá skýrslurnar okkar ad heiman...og vill bara fylgjast vel med Wink allavega allt i gúddí med þrýstinginn,en fæ að vita með kólesterólið síðar...nóg af heilsufarssögum...nema þið endilega viljið...þá get ég sagt frá því þegar ég fór í ristilsskoðun...? rétt upp hend...Happy sem vill heyra hana....ok...s.s enginn...að öðru...eða ekki..hef ekkert meir að segja.

Er að bíða eftir símtali frá elló...hringdi í morgun og sagði þeim að ég gæti unnið hjá þeim í sumar að því gefnu að ég fengi 2 vikna frí í júlí...bara kröfur og lætiWhistling en allavega,mér finnst ég BARA eiga það skilið ad fá sumarfrí eins og aðrir þótt ég sé BARA vikar...verð eflaust búin ad vinna vel inn fyrir því svo hananú,fríið vill hún égCool en hún ætlaði að kikka á planið hjá sér og hringja tilbaka...svo ég er doldið spennt að sjá..vil gjarnan komast úr krakkageiminu sem fyrst bara... gekk samt bara vel síðasta föstudag og svei mér þá...ef nokkur stykki voru ekki bara glöð ad sjá mig W00t þau eru nú bara ekki með öllum mjalla segðu....en er í fríi í dag og á morgun, er að fara med Frímanninn til augnlæknis á morgun og sjá hvort hann hafi eitthvað versnast i sjóninni blessaður...er að hugsa um ad láta kikka í eyrun á honum frekar...held hann sé frekar ad missa heyrnina...Whistling eins og gengur og gerist stundum um fimmtán ára aldurinn....kannski hægt ad skafa aðeins úr eyrunum á honum....

Nú pabbi og Sveinki koma bráðumSmile á aðfaranótt föstudags altsá..og verður bara gaman ad fá þá ...( vonandi ...hehe) en þeir eru nú að koma til ad vinna en ekki tjilla med okkurWoundering skila íbúðinni hans Sveinka...tipp topp..svo það verður nóg ad gera hjá þeim...kannski við Neville réttum þeim einhverja hjálparhönd...svona ef það liggur vel á okkur Whistling sem er nú ekki oft...en vonum það besta þeirra vegna....og vid fáum kannski FISK,LAMBALÆRI OG ÍSLENSK PÁSKAEGGGrin verður þokkalega tekið á því segðu....en bara þegar þeir eru farnir...Blush tímum ekkert ad splæsa í íslenskt þegar íslendingarnir eru hérna...hehee...en verður bara gaman að því vonandi.

Jæja,ég er víst ad fara med Mikkann til læknisins...já aftur og nýbúin...en hann greyið alltaf með exem og þarf ad fá eitthvað við því...og eins gott hann átti tíma,hann kom "meiddur" heim úr leikfimi...og aldrei þessu vant þá er eitthvað til í því hjá honum,litla táin stokkbólgin og ristin lika...steig einhver bjáninn ofaná löppina á honum...svo hann missir af fótboltaæfingunni og badmintoninu í dagFrown en læt doksa kikka á það í leiðinni bara..en jæja,roðhænsin mín...eigið góða vinnuviku...já og ég lofa...segi ykkur ALDREI brandara aftur...lúv Maja og co


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

Þú verður bara að senda mér brandarna privat fyrst að enginn hérna inni er með neinn húmor...hahahahhah. Gott fyrir ykkur að kynnast læknunum, allri hafa sinar aðferðir.... Hafið góða viku, sjálf er ég að byrja i sálfræðinni, passið ykkur núna. Kram Þórunn

Þórunn Erlingsdóttir-Larsson (IP-tala skráð) 10.3.2008 kl. 17:15

2 identicon

Fiskurinn kominn í hús, tíu kg eða svo, pabbi er væntanlega í páskaeggjaleiðangri as we speak eða svo til!  Brandarinn var snilld, minn húmor altso.

Hlakka til að sjá ykkur.

Kv, úr snjónum.

Einar Sveinn (IP-tala skráð) 10.3.2008 kl. 17:18

3 identicon

Já líkur sækir líkan osfr, ég bara skellihló þegar ég las þetta vonandi að allt verði gott með gaurana þína hjá doksa.

                            Kveðja og knús Sissú

Sissú (IP-tala skráð) 11.3.2008 kl. 08:52

4 identicon

Íslensk nammi, páskaegg, og ýsa á leiðinni til ykkar...mmmmm.

Bið að heilsa!

Erian mágkona (IP-tala skráð) 11.3.2008 kl. 13:46

5 Smámynd: María Guðmundsdóttir

 ÝSA fæ bara vatn i munninn og já,isl nammi og páskaegg,krakkarnir eru med migu af spenning og já,audvitad lika ad sjá afa og Sveinka frænda allir voda spenntir

María Guðmundsdóttir, 11.3.2008 kl. 14:30

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband