Leita í fréttum mbl.is

bara ad gamni....

                                    

                                                 

 

ágætt ad brosa stundum...

ágætt ad hlægja stundum...

     Maðurinn hafði fundið aðra - svo hún átti að flytja út.

Hún eyddi fyrsta deginum með að pakka öllu niður í kassa.

Næsta dag kom fluttningsbíllinn og sótti allt dótið.

Þriðja daginn settist hún við fallega borðstofuborðið í síðasta skipti, kveikti á kertum, setti góða músik á og borðaði stóran skammt af rækjum, rússneskum kavíar og drak flösku af Chardonnay.

Þegar hún hafði borðað, gekk hún hringinn í hvert einasta herbergi og tróð
rækjurestum inn í endana á öllum gardinustöngunum !

Þar á eftir gerði hún eldhúsið hreint og yfirgaf húsið.

Þegar maðurinn kom tilbaka í húsið með nýju kærustuna sína, voru fyrstu dagarnir
ekkert nema gleði og hamingja. En svo byrjaði húsið smám saman að lykta.

Þau prófuðu allt, ryksuguðu, þvoðu, loftuðu út.

Loftræstingin var skoðuð gaumgæfilega kanski voru þar dauðar mýsog rottur, teppin voru hreinsuð, og ilmpokum og loftfrískandi vörum var komið fyrir alls staðar.

Meindýravörnin var kölluð til og húsið var "gasað" gegn lyktinni, það þýddi, að þetta hamingjusama par þurfti að flytja út í nokkra daga.

Að lokum var allt veggfóður rifið af og húsið allt málað vel og vandlega.
Ekkert hjálpaði.

Vinirnir hættu að koma í heimsókn.

Iðnaðarmenn og aðrir starfskraftar gerðu allt til þess að þurfa ekki að vinna í húsinu.
Húshjálpin sagði upp.

Á þessum tímapunkti gátu þau ekki heldur haldið fnykinn út lengur, svo þau ákváðu að selja. Mánuði seinna hafði húsið ekki selst, þrátt fyrir að verðið hafi lækkað um helming.

Sagan gekk, og fasteignasalinn hætti að svara hringingum þeirra. Að lokum voru þau neydd til að taka stórt bankalán til að kaupa nýtt hús.

Fyrrverandi - eiginkonan hringdi til mannsins og spurði hvernig gengi.

Hann sagði henni söguna um rotna húsið.

Hún hlustaði með mikilli umhyggju og sagði svo að hún saknaði gamla heimilis síns ógurlega mikið, og hún gæti vel hugsað sér að kaupa húsið aftur.
Maðurinn var viss um að, ex-ið vissi ekkert um hve málið væri slæmt, svo hann samdi við konuna að selja henni húsið á tíunda-hluta af markaðsverði,  gegn því skilyrði að skrifað yrði undir samdægurs.

Hún samþykkti það.

Viku seinna stóðu maðurinn og kærastan í húsinu í síðasta sinn -
þau hlógu yfir sig hamingjusöm. Og þeim var létt þegar fluttningsbíllinn kom og sótti allt þeirra dót
til að keyra því yfir í nýja húsið.

- þar á meðal gardínustöngunum!!!!

Thennan sendi Sissú frænka mér, og ég sem var ekkert i svo gódu skapi gat samt glott útí annad vid ad lesann...takk fyrir thad Sissú,stundum fær madur akkúrat svona póst thegar madur tharf á ad halda ad brosa adeinsWink 

                                        Waxy 






« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: JEG

Já maður skal fara varlega í að óska sér því það getur ræst.  Knús og kossar á þig skvís.    Lovya!

JEG, 20.11.2008 kl. 21:02

2 identicon

Já þessi er svolítið mikið góður:)

En mundu það er föstudagur á morgun og svo er komið HELGARFRÍ:) Jibbý gaman gaman!

Kossar og KREMJUR á ykkur öll og eigiði góða helgi, liðið úr Sunny Beach:)

Lovísa Ósk, Sara Dís, Njóla og Óli (IP-tala skráð) 20.11.2008 kl. 21:16

3 Smámynd: Líney

óborganlegtí kotið

Líney, 20.11.2008 kl. 23:16

4 Smámynd: Kristín Gunnarsdóttir

Mikið rosalega er vþessi góður, ég bilaðist úr hlátri, frábært að þau tóku gardínustengurnar með sér HAHA.

Kærleikur til þín

Kristín Gunnarsdóttir, 21.11.2008 kl. 14:58

5 identicon

kvitt kvitt bæ bæ ella maja

ella maja (IP-tala skráð) 21.11.2008 kl. 19:17

6 identicon

Minns er alltaf jafn fyndin, ja eða þannig , þessi var stolinn,,

Sissú (IP-tala skráð) 22.11.2008 kl. 00:04

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband