Leita í fréttum mbl.is

afmælisdagur elsku ømmu Møggu er i dag.

Ákvad ad birta hér minningargreinina sem ég skrifadi til hennar á sínum tima. Blessud sé minning thin elsku amma, sakna thin enn thann dag i dag ,thú kenndir mér svo margt um lífid og tilveruna og ad thvi bý ég alla ævi Heart Kjarnakona sem thú varst , og thad med STÓRU KÁI ! 

amma magga

 

 

 

 

"Margrét Hallgrímsdóttir fæddist á Seyðisfirði 21. ágúst 1918. Hún var eitt af tíu börnum hjónanna Hallgríms Ólasonar og Maríu Guðmundsdóttur frá Skálanesi við Seyðisfirdi. Hún lést thann 19 ágúst 2005. ”Elsku Magga amma er dáin. Veit ég að þú varst hvíldinni fegin, enda búin að vera tæp til heilsunnar undanfarið og varstu búin að óska þér að fá að fara yfir móðuna miklu til hans afa, sem ég veit að hefur tekið vel á móti þér. Mér er efst í huga þakklæti fyrir að hafa fengið að hafa þig svona lengi hjá mér, og að börnin mín hafi fengið að kynnast þér og umgangast eins og raun bar vitni. Það var alltaf gott að koma heim til þín, sama hvar þú bjóst, alltaf var tekið vel á móti manni og stjanað við mann í hvívetna,og man ég eftir sem krakki að það var ekki ósjaldan kók í dós og kit kat sem beið manns þegar maður kom við hjá þeim hjónum, sérstaklega þegar afi var nýkominn úr siglingum. Eins var tekið á móti langömmubörnunum, alltaf boðið uppá kók og súkkulaði og þeim leiddist það nú ekki, enda vildu þau alltaf fá að koma með til langömmu. Þú hafðir nú gaman af því að fá okkur til þín, tala nú ekki um ef við gátum horft á einn fótboltaleik saman, og það var unun að fylgjast með þér æsa þig upp og láta þá heyra það ef þínir menn voru ekki að standa sig. Minningarnar streyma yfir mig er ég skrifa þessar línur, en væri nú of langt mál að ætla að hafa þær allar hér, en það sem er mér svo kært er að þegar ég var stelpa þá voru þær ófáar næturnar sem ég gisti hjá þér og við lágum uppí hjónarúmi og lásum bækur um miðla, ævisögur kvikmyndastjarnanna og þ.h. og ekki var ég nú gömul þá, kannski um tólf ára aldurinn, og vissi ég ansi mikið um málefni sem mínir jafnaldrar kunnu engin deili á, og það átti ég þér að þakka, þú hafðir alltaf tíma fyrir mig og lést mig alltaf finna að maður væri svo innilega velkominn á þínu heimili. Ég verð nú líka að minnast á spilakvöldin okkar forðum, þar sem fjölskyldan sameinaðist í spilamennsku, þá var tekinn kani og við Einar Sveinn bróðir fengum alltaf að vera með, og þú hafðir nú sérstaklega gaman af því ef að við náðum að vinna þá fullorðnu, þá hlakkaði í þér og þú varst stolt af þínum. Fjölskyldan var þér alltaf svo mikilvæg, þú hefðir gengið gegnum eld og brennistein fyrir okkur hin og innprentaðir manni það frá upphafi að fjölskyldan ætti að vera númer eitt. Þú skilur svo mikið eftir þig, elsku amma, arfleifð sem við búum nú að og gleymum aldrei, þín mun örugglega lengi vera minnst, þú áttir svo margt gott að gefa, ég tala nú ekki um orðheppni þína og skemmtilegar tilvitnanir, s.s. "Jesús minn á fimmtán krónur" og þessháttar orðatiltæki sem fáir þekkja, en við fjölskyldan farin að nota í okkar daglega máli og vitum okkar á milli hvað þýða. Einnig kvaddirðu mann oft með þessum orðum "bið að heilsa ef ég skyldi vakna hinum megin á morgun". Þú varst nú heldur ekki vön að skafa neitt af hlutunum, þeir voru bara látnir hafa það sem áttu það inni, og oftar en ekki glotti maður útí annað þegar þú varst í stuði, og hafðir þú sjálf gaman af þegar maður var ekki hár í loftinu og farin að þræta við foreldrana, þá hlóst þú og sagðir "henni kippir í kynið" og hafðir manna mest gaman af því þegar maður var að þrasa við karl föður sinn. Elsku amma, ég á eftir að sakna þín alveg óhemju mikið, stundanna okkar við eldhúsborðið, þar sem við drukkum kaffi í lítravís og reyktum á okkur gat, spjölluðum um heima og geima, því alltaf gat maður rætt um alla hluti við þig, hvort sem það varðaði fjölskylduna eða einkamál, þú hafðir alltaf eitthvað til málanna að leggja. En nú eru þessar stundir í minningunni og munu lifa þar um ókomin ár, eða þangað til við hittumst næst. Blessuð sé minning þín, elsku amma Magga, ég veit þér líður vel á betri stað.”

Ástarkveðja, þín sonardóttir María Guðmundsdóttir. 

 


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband