12.5.2008 | 07:21
Þá eru brunarústirnar komnar heim....
Þetta er villan sjálf psst: komnar nýjar myndir: maí 08! versogel ad kikja ef viljid
Jæja,þá eru ferðalangar komnir heim...þetta var nú stutt ferð i þetta sinn,enda prófraun svona meira en annað. Við brunuðum s.s þarna niður á Síldarströndina sem ég sagði áður frá og máttum ekki vera mikið seinni því allt var að verða fullt. En við fórum héðan um hádegisbil á laugardag,það þurfti jú ad bera út blöðin og þessháttar leiðindi En þetta er nú ekki nema hálftíma keyrsla svo það var fint. Nú svo tók við að setja tjaldvillluna upp í fyrsta skiptið...
vita nú flestir hvernig það gengur fyrir sig...og það stóðst...vorum heilan helv.klukkutíma ad koma villunni upp
kannski var það lyftan segðu...en ég missti EKKI stjórn á skapi mínu og lagði meira að segja hönd á plóginn
var reyndar aðeins farið að sjóða í mér undir lokin...en hver hefði ekki verið kominn á allavega fyrstu jaxlana segi ég nú bara
en upp fór það og svona lika fint og nóg pláss fyrir okkur ÖLL...
Veðrið var bara ÆÐISLEGT 25-27 stiga hiti og glampandi sól, ALLA helgina...og á sunnudagsmorgninum fórum vid á ströndina eldsnemma,um níuleytið og það var bara æði
ég sem er ekkert svo mikill strandfan ...en fannst æði þarna og krökkunum lika,bara vaðið lengst útí sjó,sullað,mokað og ærslast
og Hanna panna var bara ad fíla sig í botn á bikiní hele dagen og sullaði og óð í sjónum útí eitt. Meira að segja hún Birta sem auðvitað var með í för var ad gera sig...en hún fékk auddað að fara með á ströndina og SYNDA í sjónum
sem hún gerði af miklum móð við mikinn fögnuð krakkanna
og svo var rúllað sér uppúr sandinum bagefter...
við ekki svo mikinn fögnuð múttunnar....en bara gaman overall
ætlaði ad skella inn myndum en þá virkar auðvitað ekki 123.is
ég reyndar gat ekki tekið svo margar...það láðist að hlaða batteríin í vélinni áður en við fórum
en náði nokkrum þó..hef sett smá sýnishorn hérna með blogginu.
Nú auðvitað á svo ad reyna að skella sér sem oftast,það er reyndar passlegt bara fyrir þessa familíu að fara snemma á laugardegi og koma heim seinnipart sunnudags....af hverju?...jú það er nebblega soldið misjafnt hvernig stóru krökkunum semur sjáðu til og eftir þennan tima í svona nánu samfélagi er oft orðið ansi þunnt á því góða og táningurinn átti nú soldið erfitt í útilegunni...þetta er liklegast ekki alveg topp tíu hjá honum...að fara í útilegu með mömmu og pabba
en svona er það..maður þarf bara stundum ad láta sig hafa það að hanga með familíunni....
En nú er að smyrja sig með sólarvörninni og koma sér út að slá blettinn..já alltaf eitthvað sem bíður manns um helgarnar svo mér er ekki til setunnar boðið lengur..eigið bara góðan annan í Hvítasunnu,svo er það bara vinnuvikan framundan
bestu kveðjur héðan frá Harlev..Maja og co.
vinir mínir
bloggsídur vina og ættingja
-
Lovísa Hilmars..og Eyrúnar
Lobba bloggar... - Maria Gudm...gamla bloggid
-
vinir mínir
Elísa hans Einars Sveins og Erian -
vinir mínir
bloggsída Rutar -
vinir mínir
Gudrún Erla og Aron -
vinir mínir
Barnalandssida Lovísu hennar Njólu -
vinir mínir
Sissú módursystir bloggar -
vinir mínir
bloggsida báru
Tenglar
Ýmislegt
- Fréttir og flr.
- Jyllands posten
- Aarhus kommuna
- Vedrid i Danmörku
- Bilka
- Íslendingafélagid í Århus
- HIK fodbold klub
Myndasídur
Sídur med myndum frá okkur.
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (27.2.): 0
- Sl. sólarhring:
- Sl. viku: 1
- Frá upphafi: 0
Annað
- Innlit í dag: 0
- Innlit sl. viku: 1
- Gestir í dag: 0
- IP-tölur í dag: 0
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar
Eldri færslur
- Nóvember 2016
- Október 2016
- September 2016
- Nóvember 2013
- September 2013
- Maí 2013
- Desember 2012
- Júlí 2012
- Júní 2012
- Maí 2012
- Desember 2011
- Ágúst 2011
- Júlí 2011
- Mars 2011
- Febrúar 2011
- Desember 2010
- Nóvember 2010
- Desember 2009
- Nóvember 2009
- Ágúst 2009
- Júlí 2009
- Júní 2009
- Maí 2009
- Apríl 2009
- Mars 2009
- Febrúar 2009
- Janúar 2009
- Desember 2008
- Nóvember 2008
- Október 2008
- September 2008
- Ágúst 2008
- Júlí 2008
- Júní 2008
- Maí 2008
- Apríl 2008
- Mars 2008
- Febrúar 2008
Athugasemdir
Góðan daginn ! Mikið væri nú gamna að fá eitthvað af þessum hitastigum frá þér þar sem aldrei er hlítt í sveitinni á þessum árstíma. Vill til að ég á slatta af frændfólki í DK. En njóttu góða veðursins. Meee kveðjur úr sveitinni.
JEG, 12.5.2008 kl. 09:32
Öfund hjá mér ég elska útilegur, Þetta er rosalega flott tjald hjá ykkur og æææði hvað þið þurftuð að keyra stutt til að komast í svona paradís, þið eruð bara flottust. Knús á famelíen. Sissú
Sissú (IP-tala skráð) 12.5.2008 kl. 11:09
Flottar myndir, þið eruð æðisleg, þekki þetta með stóra krakka lengi saman þá er gott að gétað farið i stuttar ferðir. Panta útilegu i sumar. Margir Kramar frá Svislenskunni
Þórunn Erlingsdóttir Larsson (IP-tala skráð) 12.5.2008 kl. 16:48
Vá til hamingju með villuna og já það getur verið tómt bras að koma þessu saman í fyrsta skiptið. En æði spæði hjá ykkur að hafa svona paradís stutt frá. Knús til ykkar.
Arna Ósk (IP-tala skráð) 12.5.2008 kl. 17:06
ja sko þetta er bara æði!!
en hérna var ekki heitt að vakna í tjaldi þegar sólin byrjar að skína svona snemma morguns!!!
ég man að ég prufaði þetta einusinni við Silkiborg...og hélt ég myndi ekki ná að vakna þvi ég var soðin...
barainga (IP-tala skráð) 12.5.2008 kl. 19:05
Já Sissú,útilegur eru bara ÆDI
sérstaklega i gódu vedri og ekki langt ad fara heldur.
Takk Thórunn..gott ad einhver kannast vid svona "best ad fara stutt.."
erum s.s ekki bara vid...flaut..kramar á ykkur tilbaka 
Takk Arna mín, knús á thig tilbaka
Hæ Bára, veistu,thad var skidekalt um nóttina....en jú,var fjandi heitt strax um siben bara...og allir komnir út um átta
vegna hitans inni...en bara gaman samt sem ádur..
María Guðmundsdóttir, 12.5.2008 kl. 20:01
Til hamingju með tjaldið
. Og úfff, þið verðið að passa að setja á ykkur sólarvörn, ekki minna en spf 15
( allavega er þetta sagt okkur í vinnuni, minna en 15 er bara tilgangslaust, veit samt ekki af hverju þau eru að selja þetta). Gott veður alltaf hjá ykkur, ég er allveg til í smá sól, en helst þegar ég er ekki að vinna..he he he!
Psst...ég fer bráðum á kynningu og mannstu hvað ég sagði, ég mundi senda þér eitthvað fallegt, so let´s hope for the best goodie bag!
Bið að heilsa fjöskyldan
Erian mágkona (IP-tala skráð) 12.5.2008 kl. 20:09
Takk fyrir bloggið og myndirnar.Þvílíkt veður hjá ykkur,alveg frábært. Var nú ekki svona gott fyrir austan. En allt gott héðan. Bestu kveðjur og góða vinnuviku
pabbi (IP-tala skráð) 12.5.2008 kl. 22:32
Fint með ferðina. Ein spurning: hvað með aettarmotið fyrir bakariispakkið. Láttu vita. EG o Eh.
Erlingur & Erla (IP-tala skráð) 13.5.2008 kl. 13:17
já takk Erian...ég man sko eftir "goody bags"hehehe frá thvi heima ..en thú tharft ekkert ad senda mér..thad kostar svo mikid
bid ad heilsa sømuleidis
Takk pabbi fyrir kvedjuna,gott thid áttud gódan tima á Seydis
krammar á ykkur
takk Erlingur og Erla fyrir kvittid og kvedjuna. En med ættarmótid veit ég bara ekki neitt satt ad segja
grunar ad thad hafi verid blásid af bara
en veit samt ekki...spyrja Sissú,Eina eda Ellu Maju....
María Guðmundsdóttir, 13.5.2008 kl. 15:26
Shitt litla steikta kellingin. (rétt kíkti á myndirnar) Í guðanna bænum keyptu þér sólarvörn no 50. Og ekki vera lengi úti heheheh Vona að skinnið sé ekki horfið af þér. Knús og samúðarverkir.
Arna Ósk (IP-tala skráð) 13.5.2008 kl. 21:20
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.